Naby Keita, miðjumaður RB Leipzig mun ekki ganga til liðs við Liverpool í janúarglugganum en þetta staðfesti stjórnarformaður félagsins í dag.
Miðjumaðurinn öflugi mun ganga til liðs við Liverpool, næsta sumar en enska félagið borgar 55 milljónir punda fyrir hann.
Orðrómar hafa verið uppi um það að Keita myndi fara til Englands í janúar en hann vildi fara til Liverpool, síðasta sumar.
Keita hefur hins vegar ekki beðið um að fá að fara og samningur hans við Leipzig er ennþá í fullu gildi, þrátt fyrir að hann fari til Liverpool næsta sumar.
Keita hefur verið algjör lykilmaður í liði Leipzig, undanfarin ár en Jurgen Klopp er mikill aðdáandi leikmannsins.