Ef taka má mark á Sport, á Spáni þá hefur Philippe Coutinho látið Liverpool vita af því að hann vilji ekki spila aftur fyrir félagið.
Coutinho fór fram á sölu í sumar þegar Barcelona sýndi honum áhuga en Liverpool neitaði að selja.
Sóknarmaðurinn spilaði ekki þangað til félagaskiptaglugginn lokaði. Í gær opnaði svo glugginn á nýjan leik og þá var Coutinho meiddur.
Sport segir að Coutinho hafi nú farið fram á sölu á nýjan leik en búist er við að Barcelona reyni að kaupa hann á næstu dögum.
Talið er að Liverpool muni ekki hlusta á tilboð undir 160 milljónir punda.
Guilem Balague sérfræðingur Sky Sports tekur undir frétt Sport og segir að Liverpool sé tilbúið að selja hann.
,,Coutinho verður ekkki „heill heilsu“ gegn Everton, tónn Liverpool um framtíð hans hefur breyst,“ sagði Balague.
,,Félagið er tilbúið að selja hann núna eða í sumar, að halda honum lengur en það virðist vera síðasti kosturinn.“