fbpx
Laugardagur 27.júlí 2024

Hildur gerir tónlistina við Sicario 2

Hildur Guðnadóttir lék á selló í fyrri myndinni en semur nú tónlistina

Kristján Guðjónsson
Miðvikudaginn 8. febrúar 2017 10:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hildur Guðnadóttir mun gera tónlistina við Hollywood-myndina Soldado, sem er framhaldsmynd spennumyndarinnar Sicario frá árinu 2015. Hildur tók þátt í gerð tónlistarinnar í fyrri myndinni sem sellóleikari, en það var Jóhann Jóhannsson sem þá samdi tónlistina og hlaut hann BAFTA- og Óskarsverðlaunatilnefningu fyrir. „Þetta er allt í startholunum og spennan bókstaflega rétt að byrja,“ segir Hildur í samtali við blaðamann DV.

Sicario, sem kandamaðurinn Denis Villeneuve leikstýrði, fjallaði um átök lögreglu og glæpahrings á landamærum Mexíkó og Bandaríkjanna. Myndin þótti sérstaklega bölsýn og þótti draga upp afar myrka mynd af siðleysi fíkniefnastríðsins á milli bandarísku leyniþjónustunnar og alræmdra glæpagengja í Mexíkó, en orðið Sicario er heiti yfir leigumorðingja mexíkósku fíknefnahringjanna.

Það er Ítalinn Stefano Sollima mun leikstýra framhaldsmyndinni en handritsgerð verður í höndum Taylor Sheridan sem einnig skrifaði fyrri myndina. Hann hefur sagt að nýja myndin muni meðal annars fjalla um hervæðingu lögreglunnar í stríðinu gegn glæpagengjunum. Með aðalhlutverk fara Josh Brolin, Benicio Del Toro og Matthew Modine.

Hildur er sellóleikari, söngkona og tónskáld sem hefur gefið út fjölda platna, bæði ein og með hljómsveitinni Múm. Hún hefur samið tónlist fyrir leikhús, danssýningar og kvikmyndir, meðal annars fyrir Eiðinn, Ófærð, Tom of Finland og spilað á selló í tónlistinni fyrir The Revenant, Arrival, Prisoners og fyrstu Sicario-myndina.

„Jóhann var upphaflega beðinn um að semja tónlistina fyrir þessa mynd líka, en er mjög bundinn í öðrum verkefnum svo hann gat ekki tekið það að sér,“ segir Hildur um tildrög verkefnisins.

„Við Jóhann höfum verið bundin mjög sterkum tónlistarböndum síðastliðin 15 árin eða svo, og höfum komið með einhverjum hætti að langflestum verkefnum hvors annars alla þá tíð. Við höfum þess vegna mjög svipaða hugmynd um tónlist og hlutverk hennar, enda höfum búið og vaxið saman innan hennar svo lengi. Tónlistin fyrir Soldado verður samt ekki byggð sérstaklega á tónlistinni sem Jóhann samdi. Þetta er hugsað sem sjálfstætt framhald.“

Fréttin var uppfærð kl. 11.00.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 14 klukkutímum

Nýnasistar á Norðurlöndum laða að meðlimi í bardagaklúbba – „White Boy Summer Fest“

Nýnasistar á Norðurlöndum laða að meðlimi í bardagaklúbba – „White Boy Summer Fest“
Fréttir
Fyrir 15 klukkutímum

Eyja með gömlu hervirki til sölu – Fimmtán draugar búa þar

Eyja með gömlu hervirki til sölu – Fimmtán draugar búa þar
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Slot gefur sama svarið: ,,Megið halda áfram að reyna“

Slot gefur sama svarið: ,,Megið halda áfram að reyna“
Pressan
Fyrir 18 klukkutímum

Ættleiddi son fyrrverandi konu eiginmannsins – Móðirin lést með hörmulegum hætti

Ættleiddi son fyrrverandi konu eiginmannsins – Móðirin lést með hörmulegum hætti
Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Veðurspáin fyrir versló er komin: Hvar verður besta veðrið?

Veðurspáin fyrir versló er komin: Hvar verður besta veðrið?