Elísa Jóhannsdóttir hlýtur Íslensku barnabókaverðlaunin 2017 fyrir bók sína Er ekki allt í lagi með þig? Elísa er bókmenntafræðingur að mennt og þetta er fyrsta skáldsaga hennar. Í umsögn dómnefndar segir: „Er ekki allt í lagi með þig? er skemmtileg og spennandi unglingasaga í hæsta gæðaflokki, sem fjallar á nýstárlegan hátt um einelti frá sjónahóli bæði gerenda og þolenda.“