fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
FókusKynning

Notalegt andrúmsloft með ferskri flatbökuangan

Kynning

Adam’s Pizza & Grill er þriggja ára: 50% afsláttur af öllum pizzum í mars!

Jóhanna María Einarsdóttir
Þriðjudaginn 21. mars 2017 15:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Um árabil hefur veitingastaðurinn Adam’s Pizza & Grill notið gífurlegra vinsælda bæði að Seljabraut 54 og á nýja staðnum að Ármúla 42 í Reykjavík. Eigandi staðarins, Adam Anbari, er að sögn þakklátur fyrir frábærar móttökur viðskiptavina sinna.

Adams Special
Adams Special

„Íbúarnir í hverfinu kunnu frá upphafi að meta steinbökuðu pizzurnar okkar og það var fljótt að spyrjast út hvað maturinn er góður. Við notum alltaf besta og ferskasta hráefnið og að sögn viðskiptavina okkar erum við með ferskustu pizzurnar hér á landi. Við opnuðum nýja staðinn í Ármúlanum fyrir ekki svo löngu, til að anna aukinni eftirspurn,“ segir Adam. Adam’s Pizza & Grill var opnað fyrir þremur árum á Seljabraut og í tilefni þess er nú boðið upp á helmingsafslátt af öllum sóttum pizzum af matseðli út marsmánuð. Það er því um að gera að flýta sér að sækja eina af þessum margrómuðu gómsætu flatbökum sem allir eru að tala um.

Glæsilegur matsalur í Ármúlanum
Glæsilegur matsalur í Ármúlanum

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

Góður matur í notalegu umhverfi

Adam’s Pizza & Grill á Seljabraut er með mat til að taka með en staðurinn í Ármúlanum er vinalegur fjölskylduveitingastaður. Matsalurinn þar er vægast sagt glæsilegur. „Salurinn er mjög þægilegur, fallega innréttaður, fjölskylduvænn og rúmar hátt í fjörutíu manns í sæti,“ segir Adam. Það er mjög vinsælt á meðal íbúa í Ármúlanum að borða á staðnum eða taka mat með sér heim. Adam’s Pizza & Grill sér líka um heimsendingar á mat.

Fiskur og franskar
Fiskur og franskar

Matseðillinn á báðum stöðum er afar fjölbreyttur og er meðal annars hægt að fá frábærar steinbakaðar pizzur, girnilega hamborgara, gómsæt salöt, klassískan djúpsteiktan fisk og franskar, ómótstæðilegt kebab og margt fleira, en seðilinn má skoða á vefsíðu veitingastaðarins.

Ómótstæðilegar brauðstangir
Ómótstæðilegar brauðstangir

„Þriðjudagar eru vinadagar“

Þau hjá Adam’s Pizza & Grill eru dugleg að vera með tilboð til þess að koma viðskiptavinum sínum á bragðið. Adam segist líka vera vinur allra, en að þriðjudagar séu jafnframt sérstakir vinadagar. „Þá fá vinir okkar á Facebook „tveir fyrir einn“ tilboð á brauðstöngum,“ sem staðurinn er ekki hvað síst þekktur fyrir. Brauðstangirnar rómuðu eru ávallt ferskar og aldrei geymdar í frysti eins og víða þekkist. Hvítlauksolían sem notuð er með þeim er líka ætíð úr ferskum hvítlauk. Ásamt þeim klassísku, er hægt að fá brauðstangir með ýmsu óvenjulegu áleggi svo sem, rjómaosti, jalapeno, piparosti, og kunnugir segja að þær með piparostinum og pepperóní séu mergjaðar.

Adam’s Pizza & Grill er staðsettur að Seljabraut 54, 109 Rvk. og Ármúla 42, 108 Rvk.
Tekið er við pöntunum í síma 533-1414 frá kl. 11– 23 alla daga og heimsending er í boði á milli kl. 17–21.
Email: adamspizza@adamspizza.is
Nánari upplýsingar má nálgast á vefsíðu staðarins. Á Facebook-síðunni má svo lesa jákvæðar umsagnir viðskiptavina og tilboð eru auglýst þar reglulega.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum