Góð þjónusta og besta verðið – Eldri borgarar fá afslátt af allri garðvinnu
Aðal Garðaþjónustan sinnir öllum verkefnum sem tengjast garðinum þínum. Um er að ræða fjölskyldufyrirtæki sem er í eigu Sveins Gests Tryggvasonar og eiginkonu hans. Sveinn er búinn að vera í bransanum í yfir 10 ár og því með mikla reynslu og þekkingu á þessu sviði. „Við höfum mikla reynslu í öllu sem tengist görðum. Við leggjum okkur alla fram við öll verkefni sama hvort þau séu stór eða lítil,“ segir Sveinn.
„Við leggjum áherslu á fyrirmyndar þjónustu og erum með mjög gott verð,“ segir Sveinn. „Við tökum að okkur beðahreinsanir, snyrtingu og grisjun trjáþyrpinga, trjáfellingar, túnþökulögn, hekkklippingar, hellulögn, sólpallasmíði og allar aðrar lóða- og garðframkvæmdir,“ segir hann. „Það er bara að hafa samband ef þú vilt fá faglega ráðgjöf vegna fyrirhugaðra framkvæmda og við gerum tilboð í verkið,“ segir Sveinn í framhaldinu. „Vert er að nefna að við veitum einnig faglega ráðgjöf vegna væntanlegra framkvæmda. Auk þess bjóðum við upp á alla þjónustu tengda umhirðu og viðhaldi garðsins,“ segir hann.
„Við ákváðum í kreppunni að bjóða eldri borgurum góðan afslátt af allri garðvinnu þar sem margir sáu ekki fram á að geta keypt slíka þjónustu vegna afleiðinga kreppunnar,“ segir Sveinn. „Þetta hefur reynst afar vel og hefur fólk verið að nýta sér þetta,“ bætir hann við.
Skrifstofa fyrirtækisins er staðsett á Bollagötu 4 í Reykjavík. Til að panta þjónustu geta viðskiptavinir haft samband við eigendur í síma 770-0854 alla daga fram á kvöld.
„Hægt er að nálgast frekari upplýsingar um Aðal Garðaþjónustuna á heimasíðunni adalgardathjonustan.is og Facebook síðu fyrirtækisins en þar er að finna uppfærslur á því nýjasta í tilboðum frá okkur,“ segir Sveinn.