fbpx
Miðvikudagur 02.apríl 2025
Fréttir

Margrét óttast hrun ef Ísland velur „djöflarokk“ frá helvíti í Eurovision

Ritstjórn DV
Mánudaginn 4. febrúar 2019 10:52

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Margrét Friðriksdóttir, stjórnandi Stjórnmálaspjallsins á Facebook, er hugsi yfir þeim möguleika að hljómsveitin Hatari verði framlag Íslands til Eurovision í ár. Hljómsveitinni hefur verið spáð sigri af mörgum og telja erlendir áhugamenn um Eurovision að þarna sé kominn besti möguleiki Íslands til að ná árangri í keppninni í ár.

Margréti lýst ekkert á það og spáir hruni í  ferðamennsku á Íslandi ef það verður raunin. Þetta segir hún í athugasemdum við færslu Baldurs Muller, sem er huldumaður sem tjáir sig mikið í Stjórnmálaspjallinu. „Hljómsveitin með sinn satanisma og BDSM klæðnað er móðgun við gyðingdóminn,“ segir Baldur.

Margrét tekur undir og segir: „Þeir líta út fyrir a hafa skroppið frá helvíti til að syngja í þessari keppni, sorglegt.“ Hún er þó nokkuð örugg um að Hatari sigri ekki keppnina. „Íslendingar hafa ekki svona slæman tónlistarsmekk þótt vælarinn hafi unnið í fyrra, show some respect!,“ segir Margrét og vísar þar til þess að Ari Ólafsson grét eftir flutning sinn á Our Choice í fyrra.

Skæringur Óli nokkur segir að það sé ekkert satanískt við hljómsveitina og bætir við: „Finnst samt alveg pínu skondið að ykkur skuli ekki líka lagið, sérstaklega í ljósi þess að hatrið virðist löngu búið að sigra ykkar hjörtu og miðað við sum skrif ykkar þá gæti þetta verið ykkar þjóðsöngur.“ Þessu svarar Margrét: „Það er ekkert hatur að fíla ekki dauðarokk sem sumir kalla djöflarokk“.

Hún gengur svo lengra og segir að Ísland yrði sér til skammar ef Hatari myndi sigra. „Íslendingar eru svo sem alltaf að verða sér til skammar útávið, þannig ég yrði ekki hissa ef að þjóðin myndi kjósa BDSM hatarana áfram.“ Hún bætir svo við: „Ferðmannaiðnaðurinn myndi sennilega hrynja, gyðingar, gyðingavinir og Bandaríkjamenn myndu hætta að koma, jafnvel hætta stuðning við okkur.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 6 klukkutímum

Stefán Einar svarar fyrir sig: „Fólk þarf ekki að mæta og það þarf ekki að hlusta”

Stefán Einar svarar fyrir sig: „Fólk þarf ekki að mæta og það þarf ekki að hlusta”
Fréttir
Fyrir 7 klukkutímum

Fá ekki greitt fyrir óunna yfirvinnu úr þrotabúi Skagans 3X

Fá ekki greitt fyrir óunna yfirvinnu úr þrotabúi Skagans 3X
Fréttir
Fyrir 9 klukkutímum

Maður lést í slysinu á Reykjanesbraut í gær

Maður lést í slysinu á Reykjanesbraut í gær
Fréttir
Fyrir 10 klukkutímum

Skutu hart á meirihlutann fyrir bókun gegn hækkun veiðigjalda – Stórútgerðin hafi rústað starfsemi í sjávarplássunum

Skutu hart á meirihlutann fyrir bókun gegn hækkun veiðigjalda – Stórútgerðin hafi rústað starfsemi í sjávarplássunum
Fréttir
Fyrir 16 klukkutímum

Segir að Rússar séu reiðubúnir til að herða stríðsrekstur sinn

Segir að Rússar séu reiðubúnir til að herða stríðsrekstur sinn
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Bandarískir fjölmiðlar gefa ekki mikið fyrir Grænlandsferð Vance – „Fasteignaskoðun“

Bandarískir fjölmiðlar gefa ekki mikið fyrir Grænlandsferð Vance – „Fasteignaskoðun“
Fréttir
Í gær

Annasamur sólarhringur hjá áhöfninni á Verði II

Annasamur sólarhringur hjá áhöfninni á Verði II
Fréttir
Í gær

Ari Rúnarsson ákærður fyrir frelsissviptingu og rán – Var áður eftirlýstur af Interpol

Ari Rúnarsson ákærður fyrir frelsissviptingu og rán – Var áður eftirlýstur af Interpol