Barnið sem lést í slysinu við Núpsvötn var fætt í janúar 2018. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Lögreglunni á Suðurlandi. Eins og áður hefur komið fram voru tveir bræður á ferðalagi um Íslands ásamt fjölskyldum sínum. Eiginkonur bræðranna létust báðir í slysinu, auk ungabarnsins. Önnur konan var fædd árið 1979 en hin 1981. Bræðurnir slösuðust alvarlega auk tveggja barna þeirra sem erun sjö og níu ára gömul. Fólkið er allt breskir ríkisborgar en á rætur sínar að rekja til Indlands.
Í tilkynningu lögreglu segir að tildrög slyssins eru til rannsóknar hjá lögreglu og rannsóknarnefnd samgönguslysa. Fyrir liggur að bifreiðinni var ekið fram hjá myndavélum við Hvolsvöll snemma sama morgun. Bifreiðinni var ekið til austurs, eftir Suðurlandsvegi og virðist hafa snúist á brúnni með þeim afleiðingum að hún fór uppá vegrið brúarinnar, hægra megin, eftir því nokkra vegalengd og síðan útaf henni. Þar fellur bíllinn niður á áraurana fyrir neðan brúna.
Hægt reyndist að aka, eftir vegslóða austar á sandinum, að bifreiðinni og athafna sig með sjúkrabíla og tækjabúnað björgunaraðila við brúna. Björgunaraðgerðir voru umfangsmiklar og margir sem að þeim komu. Þannig mættu viðbragðsaðilar alla leið frá Höfn að austan og frá Selfossi að vestan auk viðbragðsaðila úr Reykjavík sem m.a voru fluttir með tveimur þyrlum Landhelgisgæslunnar. Veðurfarslegar aðstæður til björgunar á vettvangi voru þokkalegar en hinsvegar þungbúið og mikil úrkoma vestar. Landhelgisgæslan mun hafa notað þriðju vélina til að leiðsegja þyrluflugmönnum á vettvang vegna þess hversu skyggni til flugs var slæmt sem og til að tryggja fjarskipti við vettvang. Viðbragðsaðilar á leið á vettvang, bæði austan og vestan að tilkynntu um hálkubletti á leiðinni þangað.
Lögregla biður þá sem mögulega hafa upplýsingar um slysið að hafa samband við okkur í síma 444 2010, á facebook eða í tölvupósti á netfanginu sudurland@logreglan.is
Lögregla þakkar öllum þeim sem að aðgerðunum komu fyrir þeirra vinnu, stóra sem smáa. Samvinna viðbragðsaðila stendur upp úr í þessu erfiða máli og ljóst að slagkrafturinn er mikill þegar allir leggjast á eitt.