Harkaleg handtaka lögreglu á nöktum manni náðist á myndband. Vísir birtir myndband af manninum sem var að reyna að brjótast inn í hús í Kópavogi. Líkt og DV greindi frá í morgun réðist maðurinn á lögreglumenn sem komu á vettvang, hann hafði þá afklætt sig og var nakinn. Líklegast var það ekki vegna hita og veðurblíðu sem hann fækkaði fötum. Hann var handtekinn og vistaður í fangageymslu en hann er grunaður um eignaspjöll, hótanir, ofbeldi gegn opinberum starfsmanni og ýmislegt fleira.
Hér fyrir neðan má sjá myndband Vísis af handtökunni en ítarlega er fjallað um málið á miðlinum.