fbpx
Laugardagur 29.mars 2025
Fréttir

Stúlkur keyrðu inn í Adam og Evu í nótt: Stálu rándýrri kynlífsdúkku – Sjáðu ótrúlegt myndband

Björn Þorfinnsson, Hjálmar Friðriksson
Föstudaginn 21. september 2018 10:21

Adam og Eva

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Um kl. 5.30 í nótt átti óvenjulegt rán sér stað í hjálpartækjabúð Adam & Evu á Kleppsvegi. Tvær ungar stúlkur komu þá aðvífandi á litlum fólksbíl, líklega af gerðinni Hyundai i10,  og bökkuðu þrisvar sinnum í gegnum útidyrahurð verslunarinnar. Þegar leiðin var greið stukku ræningjarnir út úr bílnum og hlupu inn í verslunina. Höfðu þær meðal annars á brott með sér kynlífsdúkku sem kostar rúmlega 300 þúsund krónur.

DV hefur undir höndum myndband af innbrotinu sem hægt er að horfa á hér fyrir neðan. Í því sést hvar bílnum er bakkað þrisvar sinnum inn í útidyrahurð verslunarinnar og í kjölfarið hlaupa ræningjarnir inn í verslunina og koma síðan hlaupandi út með fenginn. Meðal annars rándýra kynlífsdúkku. Á annar ræninginn í talsverðum erfiðleikum með að koma dúkkunni fyrir í aftursæti bifreiðarinnar. Það hefst að lokum og síðan bruna ræningjarnir út í nóttina.

Bílnúmer bifreiðarinnar er skráð á bílaleigu en heimildir DV herma að númeraplatan sé stolin.

Uppfært: Rétt er að benda á að í eftirlitsmyndavélinni kemur fram að klukkan sé um 6.30 þegar innbrotið á sér stað. Samkvæmt upplýsingum frá starfsmanni Adam & Evu er klukkan á eftirlitsmyndavélinni klukkutíma á undan áætlun sem skýrir misræmið í fréttinni og myndbandinu.

Myndbandið:

Skjáskot úr myndbandinu
Af vettvangi
Af vettvangi
Kynlífsdúkka af sömu gerð og var stolið. Verðmæti hennar er um 300 þúsund krónur.
Af vettvangi

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Diljá Mist varpar ljósi á sorglegan veruleika: „Foreldrar vinkonunnar uggandi yfir stöðunni“

Diljá Mist varpar ljósi á sorglegan veruleika: „Foreldrar vinkonunnar uggandi yfir stöðunni“
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Fyrrum formaður Samfylkingarinnar sendir ríkisstjórninni tóninn

Fyrrum formaður Samfylkingarinnar sendir ríkisstjórninni tóninn
Fréttir
Í gær

Silja Bára kjörin rektor Háskóla Íslands

Silja Bára kjörin rektor Háskóla Íslands
Fréttir
Í gær

Alma gagnrýnir Bigga Veiru fyrir sorpgjörninginn – „Ekki boðlegt að blaðamönnum séu send svona skilaboð“

Alma gagnrýnir Bigga Veiru fyrir sorpgjörninginn – „Ekki boðlegt að blaðamönnum séu send svona skilaboð“