Ég hitti í morgun konu sem nefnist Marta Bergman. Hún hefur haft sig nokkuð í frammi í umræðum um moskubyggingu í Reykjavík og fleira því tengt.
Ég er á öndverðum meiði við hana – og mér þykja skoðanir hennar ekki geðfelldar.
En ég var dónalegur við Mörtu og iðrast þess.
Ég bið hana innilega afsökunar á því. Almennt reyni ég að eiga góð samskipti við fólk, líka þá sem hafa skoðanir sem mér eru alveg á móti skapi. Þannig að þetta var algjör óþarfi og mér ekki til sóma.