fbpx
Föstudagur 29.nóvember 2024
Fókus

Hjónin Viðar og Sveinn sakna grímu

Stolið á Menningarnótt

Ragna Gestsdóttir
Miðvikudaginn 23. ágúst 2017 10:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hjónin Viðar Eggertsson leikari og Sveinn Kjartansson, matreiðslumaður og eigandi AALTO Bistro í Norræna húsinu gripu í tómt þegar þeir komu heim frá Amsterdam, en einhver óprúttinn aðili hafði gerst menningarlegur á sjálfri borgarhátíð Reykvíkinga og stolið listaverki af húsi þeirra á Laufásvegi.

Listaverkið sem um ræðir er vegggríma sem prýtt hefur stöpulinn við garðshlið Skurn herraseturs Viðars og Sveins að Laufásvegi 39 og var hún að sögn Viðars keypt í skranverslun fyrir 25 árum, fékk síðan sérstaka meðhöndlun og taldist síðan listaverk í augum eigenda sinna. Og ekki bara í þeirra augum heldur eigin fjölmargra vegfarenda um Laufásveginn, sem iðulega stoppuðu og mynduðu grímuna.

Á húsveggnum á Laufásvegi.
Gríman Á húsveggnum á Laufásvegi.

Vegggrímunnar er sárt saknað af eigendum sínum og þeir sem vita hvar hún er niðurkomin eru beðnir að hringja í síma 898-8661.

Grímunni var stolið á Menningarnótt.
Horfin Grímunni var stolið á Menningarnótt.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 23 klukkutímum

In Flames til Íslands í sumar

In Flames til Íslands í sumar
Fókus
Í gær

Háklassa vændiskona útskýrir af hverju hún myndi aldrei fara í vinnuferð til Dúbaí

Háklassa vændiskona útskýrir af hverju hún myndi aldrei fara í vinnuferð til Dúbaí
Fókus
Fyrir 3 dögum

Fór að leita að norðurljósum á Íslandi en fann nokkuð enn sjaldséðara

Fór að leita að norðurljósum á Íslandi en fann nokkuð enn sjaldséðara
Fókus
Fyrir 3 dögum

Opinbera kyn fyrsta barnabarns auðkýfingsins Róberts Wessman

Opinbera kyn fyrsta barnabarns auðkýfingsins Róberts Wessman