– Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, og fjölskylda hans hafa komið sér fyrir á Bessastöðum
„Þá erum við fjölskyldan flutt á Bessastaði. Einstök fegurð blasti við í morgunsárið; geislar morgunsólarinnar lágt á himni, húsin á höfuðborgarsvæðinu sveipuð ljóma, stilltur hafflötur og ferskt loft, fjallahringurinn í fjarska, hrossin úti á túni, álftirnar kvakandi. Þetta er fallegt land, Ísland,“ segir Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, í stöðuuppfærslu sem hann birti á Facebook nú rétt í þessu.
Guðni birtir mynd með færslunni af sér á reiðhjóli og lítur út fyrir að hann sé að búa sig undir að hjóla með börn sín í skólann. Forsetinn, sem er kvæntur Elizu Reid forsetafrú á fjögur börn með henni og eina dóttur úr fyrra hjónabandi.