Hátt í 40 þúsund manns hafa skemmt sér yfir meðfylgjandi myndskeiði eftir að það birtist á Youtube þann 5.október síðastliðinn. Þar gefur á að líta Margaret miðaldra bandaríska konu sem heimsótti Ísland nú á dögunum og var auðsjáanlega dolfallin yfir því sem augu bar. Svo dolfallin að hún gat aðeins komið upp einu orði.
Í myndskeiðinu má sjá Margaret heimsækja fjölmarga þekkta staði á Suður og Vesturlandi og á hverjum einasta stað segir hún sömu setninguna: „This is dope“ sem mætti þýða sem „Þetta er geggjað“ á íslensku.
Það eina sem Margaret finnst þó ekki „geggjað“ á Íslandi er hið íslenska ópalskot en miðað við svipinn á henni er hún ekki par hrifin af bragðinu.
Sjón er sögu ríkari.