Það hefur ekki farið framhjá neinum að ferðamannastraumurinn á Íslandi hefur aukist gríðarlega á undanförnum árum og virðast flestir þeirra sem heimsækja okkur vera sammála um ágæti lands og þjóðar.
Býsna áhugavert myndband rataði inn á YouTube í gær en þar lýsir kona, líklega bandarískur ferðamaður, hrifningu sinni á landinu. Konan birtist á mörgum þekktum stöðum á landinu og notar aðeins þrjú orð til að lýsa ánægjun sinni á hverjum stað.
Myndbandið hefur verið spilað þrettán þúsund sinnum undanfarinn sólarhring en af lýsingu á því að dæma er tökumaðurinn sonur konunnar. Myndbandið má sjá hér að neðan. Einhverjum mun eflaust finnast það frumlegt og skemmtilegt á meðan öðrum mun líklega þykja það stórfurðulegt.