Kraftajötuninn Hafþór Júlíus Björnsson hefur staðið af sér ýmsa storma, bæði í kraftakeppnum og einkalífinu. Hann gerði sér lítið fyrir og stóð uppi sem sigurvegari í baráttu um titilinn Heimsins sterkasti maður í vor, en áður hafði fyrrverandi sambýliskona hans ásakað hann um heimilisofbeldi. Vísaði Fjallið þeim ásökunum hins vegar alfarið á bug.
Nýlega fór Fjallið í nokkurra milljóna króna hárígræðslu, en sitt sýnist hverjum um útkomuna.
Samkvæmt heimildum DV er Hafþór einnig nýgenginn í hjónaband. Kærasta hans er Kelsey Henson, en þau hafa verið saman síðan 2017. Parið hefur meðal annars komið fram í auglýsingu fyrir Soda Stream.
Mikil leynd mun hafa verið yfir ráðahagnum, en hjónin undirrituðu samning, sem meðal annars innihélt ákvæði um ásakanir og varnir gegn þeim.
https://www.instagram.com/p/BgzPf1uhaG1/?hl=en&taken-by=kelc33